AkureyrarAkademían auglýsir í samstarfi við Akureyrarbæ eftir umsóknum um vinnuaðstöðu til að vinna að þróun nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefna.
Vinnuaðstaðan er í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, Sunnuhlíð 12, Akureyri, og er án endurgjalds og hugsuð sem styrkur til viðkomandi verkefna. Tímabil sem auglýst er til úthlutunar eru sex mánuðir frá 1. september 2025 og til 28. febrúar 2026. Umsóknir um heil tímabil hafa að öðru jöfnu forgang en heimilt er að úthluta vinnuaðstöðu til skemmri tíma. Verklagsreglur um stuðninginn má finna hér.
Við mat á umsóknum er m.a. tekið mið af eftirfarandi þáttum:
Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst nk. Nánari upplýsingar er að fá hjá AkureyrarAkademíunni í síma 833-9861 og á netfanginu akak@akak.is
Umsóknir eru sendar á netfang AkureyrarAkademíunnar. Í umsókn gerir umsækjandi grein fyrir því verkefni sem ætlunin er að vinna að, sem og að veita upplýsingar um bakgrunn sinn og feril.