Vélstjórafélag Akureyrar (1919-1967)

Dr. Sigurgeir mun fjalla um Vélstjórafélag Akureyrar (1919-1967). Fyrirlesturinn fer fram föstudaginn 16. febrúar, kl. 13:30, í samkomusalnum á Hlíð og eru allir hjartanlega velkomnir!

Síðastliðinn vetur hóf AkureyrarAkademían nýtt samstarfsverkefni með öldrunarheimilum Akureyrar. Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur og fv. stjórnarformaður AkAk, fékk þá hugmynd að bjóða íbúum öldrunarheimilanna upp á fræðandi fyrirlestra. Sendar voru inn fjölmargar tillögur að erindum sem heimilisfólk og starfsfólk á heimilunum valdi úr.

Þetta nýja samstarfsverkefni vakti mikla ánægju og var því ákveðið að bjóða aftur upp á fyrirlestraröð á Hlíð.