Fimmtudaginn 17. september 2026 komu félagar, samstarfsaðilar og velunnarar AkureyrarAkademíunnar saman í Sunnuhlíð 12 og fögnuðu 20 ára afmæli Akademíunnar. Saga félagsins var rifjuð upp allt frá fyrstu hugmyndum til blómlegrar starfsemi. Sigurgeir Guðjónsson stjórnarformaður flutti þetta ávarp:
Á vordögum árið 2006 var mikill hugur í fræðafólki hér á Akureyri um að stofna samfélag fræðafólks, í líkingu við ReykjavíkurAkademíuna sem hafði verið stofnuð 1997. Þar voru margir bautasteinarnir eins og Valgerður H. Bjarnadóttir og Páll Björnsson munu geta hér í sínum ávörpum á eftir. Fyrstu árin var Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi í gamla Húsmæðraskólanum. Lífið þar og þrótturinn skapaði ákveðinn grunn í félagsstarfinu næstu árin. Einn af þessum grunnþáttum sem lifir er félagsmerkið sem Margrét Ingibjörg Lindquist grafískur hönnuður gerði. Merkið er fallegt, græni liturinn vísar til gróandans og gróskunnar. Það fylgdi merkinu að heitið Akureyrarakademían festist í sessi og hefur félagið borið það heiti frá árinu 2014 þegar Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna var lagt niður og Akureyrarakademían formlega stofnsett með staðfestri skipulagsskrá. Stór áfangi var árið 2020 þegar Akureyrarakademían flutti í eigið húsnæði hér í Sunnuhlíð 12. Áður höfðum við verið á harki á leigumarkaði, koman í Sunnuhlíð var því kærkomin.
Frá upphafi hefur verið markmiðið að bjóða einstaklingum upp á vinnuaðstöðu gegn hóflegu gjaldi til að sinna sínum hugðarefnum. Hjá okkur eru 13 manns með vinnupláss. Utan þess eru félagar alls 48. Til að styrkja félagsstarfið eru mánaðarlegir súpufundir, þar sem innanhússfélagar fara yfir hvað þeir eru að fást við og hvernig gengur í þeirra fræðastarfi. Einnig má nefna vorferðir þar sem nágrannabyggðir Akureyrar eru heimsóttar og fylgir málsverður á góðum veitingastað eða hóteli í lok dags. Einnig má nefna jólafagnað félagsins sem síðustu ár hefur verið haldinn í Zontasalnum í Aðalstræti 54.
Þá vil ég nefna samstarfsaðila sem ekki hafa verið nefndir: Áður fyrr þegar Húsmæðraskólans naut við var þar góður salur fyrir ýmiss konar fyrirlestrahald og samkomur. Þar má nefna hina rómuðu fimmtudagsfyrirlestra sem í seinni tíð hafa fengið nýtt líf með fyrirlestrum sem Akureyrarakademían hefur staðið fyrir á öldrunarheimilum bæjarins í samvinnu við Heilsuvernd. Einnig má nefna fyrirlestra á Minjasafninu í samvinnu okkar, Minjasafnsins og Sagnfræðingafélagsins og ekki síst má nefna svokallaða bakarísfyrirlestra þar sem við nýtum okkur nálægðina við hið góða bakarí í Sunnuhlíð. Ég vil annars fullyrða að Akureyrarakademían er mikilvægur hluti þeirra innviða sem eru og þurfa að vera fyrir hendi á Akureyri svo að bærinn sé eftirsóknarverður valkostur til búsetu, háskólanáms og þekkingarsköpunar. Í þessu skyni vil ég vísa í nýjan samstarfssamning menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis við Akureyrarakademíuna. Þar er staðfest það hlutverk akademíunnar að vera hluti af mikilvægum innviðum sem Akureyri hefur upp á að bjóða til að efla Akureyri sem svæðisborg.
Í tilefni af 20 ára afmælinu tók Aðalheiður Steingrímsdóttir sagnfræðingur og fráfarandi framkvæmdastjóri saman skýrslu yfir starf Akureyrarakademíunnar árin 2021–2026 en fyrsta skýrslan um þessi efni kom út á 15 ára afmælinu og fjallar um árin 2006–2021. Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur tók skýrsluna saman. Skýrslugerðin er okkur mikilvæg og dregur saman á einn stað hvað hefur verið gert í akademíunni á liðnum árum. Markmiðið með skýrslunum er að vekja athygli á fjölbreyttu fræða- og menningarstarfi og þýðingu þess fyrir Akureyri og nágrenni. Frá árinu 2006 hafa 133 einstaklingar verið með aðstöðu hjá AkAk, þar af 36 á þeim tíma sem ný skýrsla nær yfir: Þetta er fjölbreyttur hópur. Þar er fyrst að telja námsmenn og kennara við innlenda og erlenda háskóla. Veigamikill hópur eru sjálfstætt starfandi einyrkjar sem vinna að ýmsum rit- og fræðistörfum. Einnig sinnir hluti þeirra þróunar- og frumkvöðlaverkefnum. Sífellt stærri hópur einyrkja vinnur óstaðbundið hjá félögum, stofnunum eða fyrirtækjum. Samfélag einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn hefur stuðlað að skapandi umhverfi en slíkt er sérstaklega mikilvægt fyrir háskólanema og einyrkja.
Á liðnum 20 árum hefur AkAk staðið fyrir ríflega 250 viðburðum, þar af tæplega 100 á tímabilinu 2021–2026. Það er þónokkuð og sýnir að við erum ekki af baki dottin. Má þar nefna málþing, fyrirlestraraðir, kynningarfundi og ýmsa viðburði. Eina djarfasta framkvæmdin var svokallaður skólasögustrætó á Akureyrarvöku 2022, þar sem farið var á milli eldri leik- og barnaskóla í bænum og var stoppað og starfsemi þeirra kynnt á liðnum tíma. Hinir fjölbreyttu viðburðir varpa skýru ljósi á þá grósku sem hefur ríkt innan Akureyrarakademíunnar á liðnum árum.
Sigurgeir Guðjónsson