Þrítugur dæmdur, sextugur heiðraður - Davíð Stefánsson á Akureyri

Í fyrirlestrinum ætlar Valgerður H. Bjarnadóttir, félagi í AkureyrarAkademíunni og fyrrum húsfreyja í Davíðshúsi, að fara í ferð um Akureyri í hugarheimili, mæltu máli og skáldverkum Davíðs Stefánssonar. 

Fyrirlesturinn fer fram miðvikudaginn 7. september nk. í sal Félags eldri borgara á Akureyri, Bugðusíðu 1. og hefst hann kl. 16:30. 

Fyrirlesturinn er hluti viðburðaraðar AkureyrarAkademíunnar á þessu ári í tilefni af 160 ára afmæli Akureyrarbæjar.

Menningarsjóður Akureyrar styrkir viðburðaröðina. 

Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir.