Stjórn og fulltrúaráð AkureyrarAkademíunnar starfsárið 2020-2021

Stjórn AkAk var endurkosin fyrir starfsárið 2020-2021 og skipa hana eins og áður Steinunn A. Ólafsdóttir, formaður, Ólafur B. Thoroddsen, gjaldkeri og Sigurgeir Guðjónsson, ritari.

Í fulltrúaráð AkAk 2020-2021 voru kosnar Arndís Bergsdóttir, Bergljót Þrastardóttir, Martina Huhtamäki og Valgerður S. Bjarnadóttir.

Á fundinum var ennfremur lögð fram skýrsla stjórnar um starfsárið 2019-2020, ársreikningur AkAk 2019, rekstraráætlun AkAk fyrir árið 2020 og samþykktar breytingar á skipulagsskrá stofnunarinnar.