Starfshættir við lagagerð á Alþingi – ímyndir og raunmyndir. Málþing í samstarfi AkureyrarAkademíunnar, Háskólans á Akureyri og ReykjavíkurAkademíunnar.

Málþingið er haldið í Háskólanum á Akureyri, föstudaginn 14. nóvember 2025, kl. 14:00-16:00, í M101. 

Tilefni málþingsins eru átök og atburðir við meðferð frumvarpa á síðastliðnu vorþingi, en sjónarhornið verður þó almennara og víðfeðmara, – eða framkvæmdin við lagagerðina sjálfa, sem bæði byggir á faglegum forsendum og stjórnmálabaráttu. Áhersla verður lögð á málsmeðferð frumvarpa, gæði lagasetningar og skipulag starfa.

Fundarstjóri er Thomas Barry, forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Boðið verður upp á streymi frá málþinginu en ekki verður hægt að senda inn fyrirspurnir til framsögufólks í pallborðinu, sjá Zoom slóð í auglýsingu um málþingið í viðburðadagatali á vefsíðu Háskólans á Akureyri. 

Dagskrá

  • Kl. 14:00 Setning. Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis
  • Kl. 14:10 Alþingi og lagagerð. Dr. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, og deildarforseti við Lagadeild. 
  • Kl. 14:35 Fræðilegt og almennt yfirlit um störf Alþingis. Dr. Haukur Arnþórsson, sjálfstætt starfandi fræðimaður við ReykjavíkurAkademíuna.
  • Kl. 15:05 Starfshættir Alþingis frá sjónarhóli nýs þingmanns. Halla Hrund Logadóttir, alþingismaður.
  • Kl. 15:20 Fyrirspurnir og umræður: Framsögufólk situr fyrir svörum.
  • Kl. 16:00 Málþingslok

 

Öll velkomin!