Spennandi sumarstarf fyrir háskólanema í upplýsingafræði og sagnfræði

STARFSLÝSING
Starfið felst í að taka saman upplýsingar um fjölda, menntun og afurðir fræðafólks hjá Reykjavíkur- og AkureyrarAkademíunni á tímabilinu 1997 – 2021 og skrá í gagnagrunn. Einnig að skoða fjármögnun opinberra sjóða og breytingar á umhverfi sjálfstætt starfandi fræðafólks. Verkefninu lýkur með fyrirlestri á málþinginu Sjálfstæðir rannsakendur – umhverfi og áskoranir sem haldið verður 14. október 2022.

HÆFNISKRÖFUR
Leitað er að nema í upplýsingafræði með áhuga á gerð og virkni upplýsingagrunna og nema í sagnfræði með áhuga á sögu íslenskra fræða, rannsókna og þekkingarsköpunar á sviði hug- og félagsvísinda. Æskilegt er að umsækjendur búi yfir frumkvæði og sveigjanleika og eigi auðvelt með að vinna í teymi, auk nákvæmni í vinnubrögðum og samviskusemi.

Nánari upplýsingar um verkefnið: www.akademia.is/gagnagrunnur-styrkur/
Nánari upplýsingar um starfið: annath@akademia.is / 844-1035
Umsóknir sendist í tölvupósti til: ra@akademia.is ásamt tveimur meðmælabréfum.

Umsóknafrestur er til og með 8. maí.