Spegill þjóðar - fréttamyndir í 50 ár og sagan á bak við þær

Spegill þjóðar - fréttamyndir í 50 ár og sagan á bak við þær. Fimmtudagsfyrirlestur 19. febrúar með Gunnari V. Andréssyni og Sigmundi Erni Rúnarssyni á Minjasafninu á Akureyri, kl. 17:00. Spjall þeirra um ljósmyndir og starf Gunnars. 

Sama dag kl. 16:00 opnar sýning á Minjasafninu á ljósmyndum Gunnars með yfirskriftinni Spegill þjóðar. Á myndunum birtast augnablik úr sögunni sem fest eru á filmu og um leið í þjóðarminnið af fréttaljósmyndaranum Gunnari V. Andréssyni á 50 ára ferli hans sem fréttaljósmyndara frá 1966 til 2018. Sýningin er úrval af sýningu Ljósmyndasafns Reykjavíkur, Samferðamaður. Til viðbótar var bætt við nokkrum myndum frá Akureyri eða sem snerta sérstaklega sögu þessa landshluta. Sýninguna opna þær Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, og Heiða Björk Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur.

Léttar veitingar í boði safnsins.

Öll velkomin!