Í tilefni af 20 ára afmæli AkureyrarAkademíunnar (AkAk) á þessu ári hefur verið gefin út skýrsla um verkefni sem fólk hefur unnið að hjá AkAk og um viðburði sem AkAk hefur staðið fyrir á árunum 2021–2026. Fyrsta skýrslan um þessi efni kom út á 15 ára afmælinu og fjallar um tímann 2006–2021.
Skýrslan varpar ljósi á fjölbreytt fræða- og menningarstarf Akademíunnar og þýðingu þess fyrir Akureyri og nágrenni.
Frá upphafi hefur leiðarljósið í starfi AkAk verið að bjóða einstaklingum upp á góða aðstöðu gegn hóflegu gjaldi til að vinna að sínum hugðarefnum og að vera aflvaki þekkingarsköpunar og miðla henni til samfélagsins.
Frá árinu 2006 hafa 133 einstaklingar verið með aðstöðu hjá AkAk, þar af 36 á þeim tíma sem þessi nýja skýrsla nær yfir: Námsmenn og kennarar við innlenda og erlenda háskóla og aðrir sem vinna að rannsóknum, fræði- og ritstörfum, þróunar- og frumkvöðlaverkefnum. Eins og áður starfa langflestir þeirra á eigin vegum sem einyrkjar, en auk þess hefur hluti unnið óstaðbundið hjá félögum, stofnunum og fyrirtækjum. Samfélag einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn hefur stuðlað að skapandi umhverfi en slíkt er sérstaklega mikilvægt fyrir háskólanema og einyrkja.
Á liðnum 20 árum hefur AkAk ennfremur staðið fyrir ríflega 250 viðburðum, þar af tæplega 100 á tímabilinu 2021–2026, sem eiga þátt í að auðga mannlíf og menningu á Akureyri. Má þar nefna málþing, fyrirlestraraðir, kynningarfundi og bakarís-fyrirlestra en þeir síðastnefndu eru vettvangur fyrir fólk til að kynna opinberlega verkefni sem það hefur unnið að hjá AkAk.
Akademían hefur lengi átt farsælt samstarf við Háskólann á Akureyri og ReykjavíkurAkademíuna og frá árinu 2021 hafa Akureyrarbær og AkAk átt með sér ánægjulegt samstarf um að bjóða einstaklingum upp á endurgjaldslausa aðstöðu hjá AkAk til að vinna að nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefnum, sem margir hafa nýtt sér. Einnig hafa fjölmargir aðrir aðilar unnið með AkAk að fræða- og menningarstarfi á liðnum árum eða lagt því lið.
Þegar litið er yfir farinn veg er ljóst að starfsemin hefur gefið háskólanemum og öðrum á Akureyri og nágrenni tækifæri til menntunar og þekkingarsköpunar á heimaslóðum og að félagið er mikilvægur hluti þeirra innviða sem eru og þurfa að vera fyrir hendi á Akureyri svo að Norðurland sé eftirsóknarverður valkostur til búsetu, háskólanáms og þekkingarsköpunar.
Skýrsluna má nálgast hér.