Skafti Ingimarsson ver doktorsritgerð sína

Ritgerðin nefnist Íslenskir kommúnistar og sósíalistar: Flokksstarf, félagsgerð og stjórnmálabarátta 1918-1968.

Skafti hefur nú gefið AkureyrarAkademíunni eintak af doktorsritgerð sinni sem við erum stolt að taka á móti en Skafti hefur unnið mikið starf í þágu AkureyrarAkademíunnar og var meðal annars formaður hennar árin 2013-2015.

Við óskum Skafta innilega til hamingju með áfangann!