Séra Jón Ómar Gunnarsson skipaður prestur í Fella- og Hólakirkju

Síðastliðið haust kom séra Jón Ómar Gunnarsson, prestur í Glerárkirkju, í AkureyrarAkademíuna til að skrifa meistaraverkefni sitt í predikunarfræðum, sem hann hefur nú lokið. Skil á meistararitgerðinni er ekki eini áfanginn þessi misserin hjá Jóni Ómari því hann hefur nú verið skipaður prestur í Fella- og Hólakirkju. Við óskum Jóni Ómari til hamingju með embættið og vonum að honum farnist vel í leik og starfi.