Samstarf AkureyrarAkademíunnar og öldrunarheimila Akureyrarbæjar um fyrirlestra fyrir heimilisfólk

Vegna kóvít-19 verður fyrirlestrum að þessu sinni streymt til heimilisfólks og fer fyrsti fyrirlesturinn fram á morgun, fimmtudag 12. nóvember. Sá næsti verður í desember og tveir fyrirlestrar verða síðan í byrjun næsta árs. Við hjá AkAk erum mjög ánægð með að geta lagt eldri borgurum lið og stytt þeim stundirnar við þessar aðstæður í samfélaginu.