Opið fyrir umsóknir í Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota

Hraðallinn fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á verkefninu stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja á Norðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Leitast er eftir þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Vaxtarrými Norðanáttarinnar til að vaxa.

Átta teymi tóku þátt í Vaxtarrými 2021 og stendur þeim til boða að taka þátt sem svokallaðir Alumni frumkvöðlar og sitja fræðslufundi og leiðbeina árganginum í ár. Þannig má skapa virkt frumkvöðlasamfélag með jafningjaráðgjöf á Norðurlandi.

Kynningarfundur Vaxtarrýmis fer fram 13. september í gegnum netið - Auglýst nánar þegar nær dregur.

Umsóknarfrestur er til og með 19. september. Í framhaldinu verða valin sex til átta teymi til þátttöku.

Sjá umsóknarform og nánari upplýsingar á vefsíðu Norðanáttar Nordanatt.is

Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Að verkefninu koma Norðanátt, Eimur, SSNV, SSNE og RATA.