Stjórn AkureyrarAkademíunnar hefur ráðið Þuríði Helgu Kristjánsdóttur í starf framkvæmdastjóra AkAk og tekur hún við starfinu í byrjun ágúst nk. Fráfarandi framkvæmdastjóri er Aðalheiður Steingrímsdóttir sem gegnt hefur starfinu frá árinu 2020.
Þuríður Helga hefur yfirgripsmikla og fjölbreytta reynslu af stjórnun og stefnumótun ásamt og verkefna- og viðburðastjórnun, en hún var framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar á árunum 2016-2022 og verkefna- og starfmannastjóri Norræna hússins í Reykjavík árin 2007-2015.
Hún er með MA í mannauðsstjórnun, diplómu í umhverfis- og auðlindafræði, diplómu í kennslufræðum og BA í myndlist. Samhliða því hefur hún sérhæft sig í og lagt stund á hugleiðslu og jóga um árabil.
Undanfarið hefur Þuríður sinnt ólíkum störfum í gegnum fyrirtækið sitt Veglyndi, sem býður upp á námskeið, stjórnendaráðgjöf, fyrirlestra og vinnustofur. Í starfi sínu nýtir hún hugmyndafræði Inner Development Goals (IDG) og skapandi hugsun sem verkfæri til að takast á við persónulegar og samfélagslegar áskoranir, með nálgun sem byggir m.a. á kenningu U (Theory U).
Við bjóðum Þuríði Helgu velkomna til starfa!