Ný vefsíða AkureyrarAkademíunnar

Á myndinni eru frá vinstri: Auður Ása Maríasdóttir ráðgjafi hjá Stefnu, Björn Gíslason framkvæmdastj…
Á myndinni eru frá vinstri: Auður Ása Maríasdóttir ráðgjafi hjá Stefnu, Björn Gíslason framkvæmdastjóri Stefnu og frá AkAk: Margrét Guðmundsdóttir, Silja Jóhannesar Ástudóttir, Sigurgeir Guðjónsson, Aðalheiður Steingrímsdóttir, Þröstur Ásmundsson, Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, Bryndís Fjóla Pétursdóttir, Þórhallur S. Bjarnason og Jón Örn Pálsson.

Að undanförnu hefur verið unnið að því að koma upp nýrri vefsíðu AkureyrarAkademíunnar í samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Stefnu og  fer nú senn að líða að því að nýja síðan fari í loftið.

Af því tilefni var farið í heimsókn til Stefnu til að taka myndir. Við hjá AkAk þökkum Stefnu kærlega fyrir gott samstarf við að undirbúa nýju vefsíðuna.