Náttúra og auðlindanýting á Norðurlandi

Náttúra og auðlindanýting á Norðurlandi. Málþing í samstarfi AkureyrarAkademíunnar og Auðlindadeildar Háskólans á Akureyri, fimmtudag 30. apríl, kl. 12:00 – 14:00, Háskólanum á Akureyri, stofu M102. 

Fundarstjóri er Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-; viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi.

Dagskrá

Kl. 12:00Ávarp – Sigurgeir Guðjónsson, stjórnarformaður AkureyrarAkademíunnar.

Kl. 12:05Fimm 15 mínútna framsögur um þema málþingsins:

  • Hreiðar Þór Valtýsson, dósent við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri: Fiskveiðar frá Norðurlandi í 125 ár.
  • Jón Örn Pálsson, sjávarútvegsfræðingur, sjálfstætt starfandi hjá AkureyrarAkademíunni: Ný auðlindanýting á strandsvæðum Íslands.
  • Rannveig Björnsdóttir, prófessor við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri: Verðmætasköpun úr blóði eldisfisks.
  • Þórhallur S. Bjarnason, véla- og orkutæknifræðingur, sjálfstætt starfandi hjá AkureyrarAkademíunni: Vistvænn orkuberi úr hreinum auðlindum.
  • Rán Þórarinsdóttir, líffræðingur á sviði dýravistfræði hjá Náttúrustofu Norðausturlands

og með aðsetur hjá AkureyrarAkademíunni: Að meta áhrif vindorkuvera á fugla.

Kl. 13:20Pallborðsumræður: Framsögumenn sitja fyrir svörum.

Kl. 14:00Málþingslok.

Öll velkomin!