Konur taka af skarið!

Verkefnið hlaut styrk úr Jafnréttissjóði Íslands og er markmið þess að hvetja konur til þátttöku og áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar. 

Fyrsta námskeiðið fer fram í sal Einingar-Iðju laugardaginn 10. nóvember frá kl. 10:00-17:00. Námskeiðið er opið öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitarfélaganna, þeim að kostnaðarlausu. Skráning skal berst í síðasta lagi fimmtudaginn 8. nóvember á netfangið kristinheba@akak.is eða í síma 461-4006.