Helena og hvítu mávarnir

Ófáar dægurperlurnar hefur Helena M. Eyjólfsdóttir (f. 1942) sungið sem hafa greypst inn í hjörtu landsmanna. Ung heillaðist hún af sönglistinni og söng ellefu ára gömul í fyrsta skipti inn á hljómplötu. Eitt leiddi af öðru og árið 1957 var teningnum kastað og söngferillinn hófst fyrir alvöru með hinum ýmsu hljómsveitum. Í sextíu ár, frá árinu 1966, hefur Helena búið á Akureyri og heldur betur lagt lóð sín á vogarskálarnar í tónlistarsögu bæjarins, ekki síst í Hljómsveit Ingimars Eydal í Sjálfstæðishúsinu/Sjallanum. 

Í fyrirlestrinum mun Óskar Þór Halldórsson fara yfir tónlistarferil Helenu í máli, myndum og með tóndæmum. Ferill Helenu er áhugaverður og fjölbreyttur og tengist órjúfa böndum þróun dægurtónlistar á Íslandi á 20. öld.

Óskar Þór Halldórsson (f. 1961) er blaða- og fréttamaður og rithöfundur. Á síðustu árum hefur hann sent frá sér nokkrar bækur, sú nýjasta, Akureyrarveikin, kom út á síðasta ári. Fyrsta bókin sem Óskar Þór sendi frá sér var Gullin ský – ævisaga Helenu M. Eyjólfsdóttur, sem kom út árið 2013.

Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkir viðburðina.

Öll velkomin – ókeypis aðgangur!