Heimsókn frá Háskólanum á Akureyri

Samstarfið milli aðilanna hefur um árabil verið mjög gott en áhersla hefur verið lögð á að bæta það enn frekar.

Í síðustu viku kom Stefán B. Sigurðsson, prófessor við HA, í heimsókn í AkAk og átti fund með doktorsnemum og nýdoktorum sem starfa í AkAk. Fundurinn er liður í undirbúningi HA á doktorsnámi við skólann og ræddu Stefán og akademónarnir ýmsa mikilvæga þætti í uppbyggingu doktorsnáms.