Haldið upp á 15 ára afmæli AkureyrarAkademíunnar

Boðið var upp á léttar veitingar og dagskrá til heiðurs afmælisbarninu sem nú er orðið ungmenni. Steinunn A. Ólafsdóttir formaður stjórnar AkAk var með ávarp, Vilhjálmur B. Bragason Vandræðaskáld skemmti með söng og tónlist og Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur kynnti skýrslu um verkefni og viðburði á vettvangi AkAk 2006 - 2021 sem hún tók saman. Takk fyrir komuna öll og ánægjulega samveru!