Fyrirlestur um hernámsárin á Akureyri

Í fyrirlestrinum segir Jón Hjaltason sagnfræðingur frá hernámsárunum á Akureyri og bregður upp fjölda ljósmynda frá veru breska hersins í bænum. 

Fyrirlesturinn fer fram á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Vestursíðu 9, Akureyri, föstudaginn 21. október og hefst kl. 13:30.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Norðurorka hf. styrkir fyrirlestraröðina.

Öll velkomin og enginn aðgangseyrir.