Markús Ívarsson; saga Eyfirðings sem var á flótta undan réttvísinni í tæp fjörutíu ár

Fyrirlesturinn bar heitið: Markús Ívarsson; saga Eyfirðings sem var á flótta undan réttvísinni í tæp fjörutíu ár. Markús Ívarsson var Eyfirðingur sem ungur gerðist sekur um ærstuld; var dæmdur, sat í tukthúsi í Kaupmannahöfn, kom heim, gerðist nýtur samfélagsþegn uns hann féll aftur í freistni í neyð áranna efir 1880, var hnepptur í gæsluvarðhald, strauk og var á flótta undan réttvísinni frá 1881 uns hann andaðist 1923.

Vegna Covid-19 og samkomutakmarkana var fyrirlestrinum streymt úr húsnæði AkAk til íbúa heimilanna. 

Fyrirlesturinn er styrktur af Menningar- og viðurkenningasjóði KEA og Samfélagssjóði Norðurorku hf.