Laxárdeilan

Nafnlaus foss í Aðallæk Krákár - í miðju því svæði sem vatnaflutningar hefðu lagt undir sig.
Nafnlaus foss í Aðallæk Krákár - í miðju því svæði sem vatnaflutningar hefðu lagt undir sig.

Fyrirlestur Benedikts Sigurðarsonar um Laxárdeiluna í salnum á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Vestursíðu 9, Akureyri, föstudag 17. apríl, kl. 13:30. 

Árin 1968 til 1974 stóð ágreiningur um stórkarlalegar virkjunarhugmyndir í Laxá i Þingeyjarsýslu - með Suðurárveitu/Skjálfandafljótsveitu og tilheyrandi miðlunarlónum og allt að 60m hárri stíflu neðst í Laxárdal. Virkjun Laxár við Brúarfossa og framkvæmdir við útfall árinnar úr Mývatni á sér rúmlega 90 ára sögu og samhengi. Laxárdeilan var kveðin niður eftir að Þingeyingar sprengdu stífluna i Miðkvísl í ágúst 1970 og sett voru sérlög um „verndun Laxár og Mývatns" árið 1974. Í erindinu verður fjallað um samhengi Laxárvirkjana og átakanna sem risu um áformað rask með vatnaflutningum úr Skjálfandafljóti. Brugðið er upp myndum innan og utanfrá vettvangi átakanna – og rifjuð upp nöfn leikenda og helstu viðburðir í samhengi seinni tíma.

Benedikt Sigurðarson er eftirlaunamaður á Akureyri. Hann er sérfræðingur í skólastjórnun og fyrrverandi skólastjóri, háskólakennari og framkvæmdastjóri. Benedikt er meðlimur AkureyrarAkademíunnar og vinnur nú einkum að því að rifja upp sögubrot og minningar úr samfélaginu í Mývatnssveit sem hann fæddist inn í um miðja síðustu öld en þar ólst hann upp á bænum Grænavatni og var á unglingsárum þegar Laxárdeilan hófst fyrir alvöru.

Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkir viðburðina.

Öll velkomin – ókeypis aðgangur!