Konurnar í verksmiðjunum á Akureyri

Arndís Bergsdóttir safnfræðingur fjallaði um konurnar sem unnu í verksmiðjunum á Akureyri.

Samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar og öldrunarheimilanna um fyrirlestra fyrir íbúa heimilanna og aðra bæjarbúa hefur gefist mjög vel. Erindin hafa verið vel sótt af íbúum á Hlíð sem og öðrum bæjarbúum og ánægja er með framtakið, bæði meðal fræðimannanna sem hafa haldið erindi sem og gesta. 

Fyrirlesturinn er styrktur af Menningar- og viðurkenningasjóði KEA og Samfélagssjóði Norðurorku hf.