Fortíðin í nýju ljósi: Ilmur, angan og fnykur: Ýmis lykt í íslenskum heimildum frá 19. og 20. öld

Fimmtudagsfyrirlestur Ragnhildar Bjartar Björnsdóttur, sagnfræðings, þar sem hún þefar fortíðina uppi í fyrirlestraröðinni Fortíðin í nýju ljósi á Minjasafninu á Akureyri fimmtudaginn 5. mars kl. 17:00. Fimmtudagsfyrirlestrarnir eru samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar, Minjasafnsins og Sagnfræðingafélags Íslands.

Sögu tilfinninga hefur lítið verið gefinn gaumur fram til þessa. Í sjálfsbókmenntum og tímaritum frá seinni hluta 19. aldar og byrjun 20. aldar er að finna glás af lýsingum á alls konar lykt. Fólk lýsir anganinni sem stígur upp úr fjallagrasabeði á rökum haustmorgni, ilminum úr eldhúsinu þegar mamma bakaði pönnukökur og fnyknum sem steig upp úr pottinum á þvottadegi. Allar gefa þessar heimildir okkur betri innsýn inn í hversdagslíf Íslendinga fyrr á öldum og með því að einblína á lyktina – að þefa fortíðina uppi – fæst vitneskja um hvaða skoðanir fólk hafði á sjálfu sér, öðrum og umhverfi sínu.

Í fyrirlestrinum verðar nokkrar skemmtilegar lýsingar á lykt dregnar fram og lögð verður sérstök áhersla á lýsingar á lykt sem finna mátti á Akureyri og í nærsveitum. Gerður verður saman burður á lyktinni í sveit og þéttbýli auk þess sem rætt verður um ólík orð sem heimildamenn nota yfir ólíka ilmi og fnyki.

Verkefni Ragnhildar, Íslandssaga skynfæra, var tilnefnt til verðlauna Nýsköpunarsjóðs námsmanna árið 2025. Það var unnið undir leiðsögn Sigurðar Gylfa Magnússonar, prófessors í menningarsögu við Háskóla Íslands.

Öll velkomin - enginn aðgangseyrir!

Næstu fimmtudagsfyrirlestrar á Minjasafninu:

12. mars. Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur (1809-1871) og brotakenndar heimildir. Dr. Erla Hulda Halldórsdóttir, sagnfræðingur. 

19. mars. Skreytingar í handritum síðari alda og þáttur af einum norðlenskum listaskrifara. Kjartan Ísleifsson, sagnfræðingur.