Fortíðin í nýju ljósi: Akureyrarveikin og ME-sjúkdómurinn

Fimmtudagsfyrirlestur Óskars Þórs Halldórssonar og dr. Friðbjörns Sigurðssonar um Akureyrarveikina og ME-sjúkdóminn, 12. febrúar á Minjasafninu á Akureyri, kl. 17:00. Fimmtudagsfyrirlestrarnir eru samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar, Minjasafnsins og Sagnfræðingafélags Íslands. 

Akureyrarveikin var skæður sjúkdómur sem herjaði á Akureyringa og fjölmarga aðra um allt land veturinn 1948 til 1949. Veikin stakk sér aftur niður sex árum síðar, veturinn 1955-1956, á Vestfjörðum og í Þistilfirði. Aldrei hefur verið upplýst hvers konar veikindi þetta voru en allt bendir til þess að um hafi verið að ræða veirusýkingu af einhverjum toga.

Það hefur komið í ljós að sláandi líkindi eru með afleiðingum Akureyrarveikinnar og langvarandi eftirköstum COVID 19 og ME-sjúkdómnum. Þetta kemur skýrt fram í bók Óskars Þórs Halldórssonar um Akureyrarveikina sem kom út á síðasta ári og hefur vakið mikla athygli. Til einföldunar má segja að Akureyrarveikin hafi verið ME-sjúkdómur þess tíma.

Friðbjörn Sigurðsson læknir við Akureyrarklíníkina, sem er þjónustumiðstöð fyrir fólk með ME-súkdóminn eða langvarandi einkenni COVID, þekkir vel einkenni ME-sjúkdómsins og hversu útbreiddur hann er í okkar samfélagi á Íslandi og út um allan heim.

Óskar Þór og Friðbjörn munu í fyrirlestri sínum tefla saman fortíð og nútíð og velta upp ýmsu er tengir Akureyrarveikina og ME-sjúkdóminn.

Öll velkomin - enginn aðgangseyrir!