Fjölmenning á Akureyri:Innflytjendur og íslenskan

Markmið málþingsins er að hefja samtalið um það sem verið er að gera hér í bænum til að auka færni innflytjenda í íslensku og gera þeim kleift að taka virkan þátt í samfélaginu. Málþingsstjóri er Valgerður H. Bjarnadóttir, félagi í AkureyrarAkademíunni og sjálfstætt starfandi fræðikona.

Inngangserindi. Samfélag fjölbreytileikans á Íslandi – áskoranir og tækifæri. Dr. Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor Háskólanum á Akureyri.

Aðrir frummælendur og þátttakendur í pallborðum:

Ingibjörg Margrét Magnúsdóttir, kennsluráðgjafi barna með íslensku sem annað mál Fræðslu- og lýðheilsusviði Akureyrarbæjar.
Kristín Björk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri/ráðgjafi Símey.
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju.
Jóna Jónsdóttir, starfsmannastjóri og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Ahmed Essabiani, viðskiptafræðingur, menningarmiðlari, fyrirlesari og túlkur.
Erwin van der Werve, myndlistamaður, leiðsögumaður og skíðakennari.
Fayrouz Nouh, doktorsnemi og fjölmenningarfulltrúi í Giljaskóla.
Lara W. Hoffmann, doktorsnemi, háskólakennari og verkefnastjóri.
Magdalena Þórarinsdóttir, samfélagstúlkur.
Halla Björk Reynisdóttir, formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar.
Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir, verkefnastjóri ÍSAT (íslenska sem annað tungumál) í Síðuskóla.

Pallborðsumræðum stýra Auður H. Ingólfsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, og Finnur Friðriksson, málfræðingur og dósent Háskólanum á Akureyri.

Nánari upplýsingar um dagskrána eru á vefsíðu AkureyrarAkademíunnar http://www.akak.is/

Málþingið verður tekið upp og upptakan gerð aðgengileg á miðlum AkureyrarAkademíunnar.

Málþingið er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar í tilefni af 160 ára afmæli Akureyrarbæjar. Menningarsjóður Akureyrar styrkir viðburðina.

Öll velkomin og ókeypis aðgangur.