Ert þú frumkvöðull sem vantar vinnuaðstöðu?

AkureyrarAkademían auglýsir eftir umsóknum um vinnuaðstöðu til að vinna að þróun nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefna í samstarfi við Akureyrarbæ.

Vinnuaðstaðan er í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, Sunnuhlíð 12, Akureyri, og er án endurgjalds og hugsuð sem styrkur til viðkomandi verkefna. Tímabil sem auglýst er til úthlutunar eru sex mánuðir frá 1. mars 2024 og til 31. ágúst 2024. Umsóknir um heil tímabil hafa að öðru jöfnu forgang en heimilt er að úthluta vinnuaðstöðu til skemmri tíma. Verklagsreglur um stuðninginn má finna hér.

Við mat á umsóknum er m.a. tekið mið af eftirfarandi þáttum:

  • Nýsköpunargildi verkefnis.
  • Verkefnið sé í þróun, eiginleg starfsemi ekki hafin og að það sé ekki í samkeppni við starfsemi sem fyrir er á markaði.
  • Verkefnið falli vel að starfsemi AkureyrarAkademíunnar.

 

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar nk.

Nánari upplýsingar er að fá hjá AkureyrarAkademíunni í síma 833-9861 og á netfanginu akak@akak.is