Dagskrá ársfundar AkureyrarAkademíunnar 2022

Fundurinn hefst kl. 19:30 og kjósa fundarmenn sér ritara og fundarstjóra. Steinunn A. Ólafsdóttir býður sig fram sem ritari og Sigurgeir Guðjónsson sem fundarstjóri.

Dagskrá ársfundar er eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar: Steinunn A. Ólafsdóttir, stjórnarformaður.

2. Endurskoðun reikninga: Þórhallur S. Bjarnason, gjaldkeri, kynnir ársreikning.

3. Upptalning fulltrúa: Aðalheiður Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri, les upp fulltrúa.

4. Kjör formanns og fulltrúaráðs. Ársfundur kýs sjö manna fulltrúaráð. Stjórn er skipuð þremur einstaklingum úr fulltrúaráði. Formaður er kosinn sérstaklega. Fulltrúaráð kýs úr sínum röðum gjaldkera og ritara. Þau sem hafa boðið sig fram í fulltrúaráð eru:
a) Sigurgeir Guðjónsson, formaður
b) Þórhallur S. Bjarnason, gjaldkeri
c) Steinunn A. Ólafsdóttir, ritari
d) Gunnar Árnason, fulltrúaráð
e) Jakob Þór Kristjánsson, fulltrúaráð
f) Jón Hjaltason, fulltrúaráð
g) Margrét Guðmundsdóttir, fulltrúaráð

5. Fjárhagsáætlun og árgjald.
a. Aðalheiður Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri, leggur fram rekstraráætlun fyrir árið 2022.
b. Árgjald er nú 1500 kr. Stjórn leggur til óbreytt árgjald.

6. Breytingar á skipulagsskrá. Stjórn leggur ekki til breytingar á skipulagsskrá.

7. Önnur mál.
a. Kynning á niðurstöðum viðhorfskönnunar AkAk um aðstöðu og þjónustu.
b. Húsnæði í Sunnuhlíð fyrir heilsugæsluna Akureyri.
c. Félagsstarf, m.a. vorferð akademóna o.fl.

8. Fundi slitið.

Eftir fundinn verður boðið upp á léttar veitingar.