Barnabókakynning

Tveir rithöfundar kynntu bækur sínar. Margrét Tryggvadóttir kynnti Íslandsbók barnanna og Sævar Helgi Bragason Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna.

Margrét Guðmundsdóttir tók lagið með Þórarni Hjartarsyni en Margrét er jafnframt stjórnarformaður AkureyrarAkademíunnar. Stúfur kom svo í óvænt heimsókn og skemmti ungum sem öldnum.