Í fyrirlestri sínum mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Listasafninu á Akureyri, kynna úrval portrettverka úr safneign Listasafnsins. Um er að ræða fjölbreytt safn andlitsmynda frá ólíkum tímum, þar sem listamenn beita mismunandi aðferðum og efni til að draga fram hið einstaka í persónunni og veita innsýn í innri heim og sögu hvers og eins. Farið verður yfir fjölbreytt verk sem fanga útlit og svip gegnum ólíka miðla.
Fyrirlesturinn fer fram 30. október 2026 kl. 13:00 í salnum á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Vestursíðu 9, Akureyri.
Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa sem Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkir.
Öll velkomin og engin aðgangseyrir.
Snorri Ásmundsson, Matti, 2007.
