Ársfundur AkureyrarAkademíunnar 2026

Ársfundur AkureyrarAkademíunnar 2026 verður haldinn 21. maí nk. Fundurinn hefst kl. 19:30 og fer hann fram í húsnæði AkAk, Sunnuhlíð 13.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf skv. 12. grein skipulagsskrár AkAk: 

1. Skýrsla stjórnar.
2. Endurskoðun reikninga.
3. Upptalning fulltrúa.
4. Kjör formanns og fulltrúaráðs.
5. Fjárhagsáætlun og árgjald.
6. Breytingar á skipulagsskrá.
7. Önnur mál.

Vakin er athygli á að samkvæmt 5. gr. skipulagsskrár er atkvæðisréttur á ársfundi bundinn við þá sem greiða árgjald, kr. 2.000, fyrir fundinn
en fundurinn er engu að síður öllum opinn.

Eftir ársfundinn verður boðið upp á léttar veitingar.

Fundarboð ársfundar 2026, sjá hér