Ársfundur AkureyrarAkademíunnar 2023

Á dagskrá eru aðalfundarstörf samkvæmt 12. gr. skipulagsskrár AkAk:

1. Skýrsla stjórnar.
2. Endurskoðun reikninga.
3. Upptalning fulltrúa.
4. Kjör formanns og fulltrúaráðs.
5. Fjárhagsáætlun og árgjald.
6. Breytingar á skipulagsskrá.
7. Önnur mál.

Vakin er athygli á að samkvæmt 5. gr. skipulagsskrár er atkvæðisréttur á ársfundi bundinn við þá sem greiða árgjald fyrir ársfund, kr. 1.500, en fundurinn er engu að síður öllum opinn.

Eftir ársfundinn verður boðið upp á léttar veitingar.