Árbók Ferðafélags Íslands 2020

Bókin fjallar um svæðið frá Tálkna í norðri að Stálfjalli í suðri. Fyrir þá sem ekki átta sig á þessum örnefnum þá nær svæðið yfir Patreksfjörð, Rauðasand, Látrabjarg og Útvíkur sem eru Látravík, Breiðavík og Kollsvík. Í bókinni er fjallað um landið, náttúrufar og fornar leiðir um héraðið og svo söguna þar sem mannlíf, útgerð og sjósókn skipa öndvegi.

Annar aðalhöfundur bókarinnar er Akademóninn, Ólafur B. Thoroddsen, en hinn aðalhöfundurinn er Gísli Már Gíslason, prófessor í líffræði við Háskóla Íslands. Báðir rekja þeir ættir til Rauðasandshrepps hins forna. Ólafur er fæddur og uppalinn á Patreksfirði og var mörg sumur í sveit á Hvallátrum og Gísli Már ólst að hluta til upp á Hvallátrum en er Reykvíkingur.

Bókin er prýdd mörgum myndum af svæðinu og flestar þeirra tók Daníel Bergmann sem er ljósmyndari með meiru.

Á meðfylgjandi mynd er hampar Ólafur bókinni góðu eftir áritun nokkurra eintaka fyrir Ferðafélag Íslands. Með honum á myndinni er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ og Þóra Ákadóttir (eiginkona Ólafs) sem bauð upp á vöfflukaffi í tilefni af útkomu bókarinnar.