Leitað er að áreiðanlegum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, skipulagshæfni og getu til að starfa sjálfstætt og að vinna með öðrum. Um er að ræða 50% starf. Ráðning er frá 1. maí 2026. Senda skal ferilskrá og kynningarbréf á netfangið akak@akak.is Umsóknarfrestur er til og með 18. mars nk.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar, Aðalheiður Steingrímsdóttir, í síma 833-9861, og á netfanginu akak@akak.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Um AkureyrarAkademíuna
AkureyrarAkademían (AkAk) er rannsókna- og fræðasetur með aðsetur í verslunar- og þjónustumiðstöðinni við Sunnuhlíð 12, Akureyri. Starfsemi AkAk felst í að leigja einstaklingum aðstöðu til að vinna að sínum hugðarefnum og að miðla þekkingu til samfélagsins með því að bjóða almenningi upp á margvíslega viðburði, ýmist á eigin vegum eða í samstarfi við aðra. Framkvæmdastjóri hefur umsjón með fjármálum, daglegum rekstri og starfsemi stofnunarinnar í umboði stjórnar. Vefsíða er akak.is