AkureyrarAkademían auglýsir eftir að ráða verkefnastjóra í 50% starf

Starfssvið

  • Umsjón og skipulagning viðburða 
  • Kynningarmál og umsjón með heimasíðu 
  • Daglegur rekstur og umsjón með fjármálum stofnunarinnar 
  • Samskipti og samstarf við aðrar sambærilegar stofnanir, öflun verkefna og styrkja 

Hæfniskröfur 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á fræðimennsku og rannsóknum 
  • Reynsla af verkefnastjórnun æskileg 
  • Góð tölvufærni 
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku 
  • Færni í Norðurlandamáli/öðrum tungumálum er kostur 
  • Sjálfstæði og vandvirkni í vinnubrögðum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og geta til að vinna með öðrum

 

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður AkAk, Valgerður S. Bjarnadóttir, í síma 868-6651 eða á netfanginu stjorn@akak.is 

Umsókn, ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur berist á netfangið stjorn@akak.is fyrir 27. janúar. 

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem sinnir margskonar fræði- og/eða ritstörfum. AkureyrarAkademían sinnir rannsóknarverkefnum og stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og viðburðum.