Akademón vefsíðunnar og verðlaunaafhending

Í tilefni af því buðum við upp á skemmtilegan leik sem fólst í því að leysa lauflétta krossgátu með því að skoða upplýsingar á síðunni, finna lausnarorðið og senda það inn. Einn heppinn einstaklingur yrði Akademón vefsíðunnar og fengi verðlaun að auki. 

Í dag var dregið úr réttum innsendum lausnarorðum og er Rúnar Sveinsson vinningshafinn. Rúnar er búsettur á Akureyri og er skrifstofumaður hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Ramma hf.

Rúnar leit við hjá okkur í dag til að taka við nafnbótinni Akademón vefsíðunnar og gjafakorti að upphæð kr. 10.000.

Við óskum Rúnari innilega til hamingju með verðlaunin!