Fortíðin verður í forgrunni sem aldrei fyrr sex fimmtudaga í febrúar og mars. Minjasafnið á Akureyri, AkureyrarAkademían og Sagnfræðingafélag Íslands standa að viðburðaröð um sagnfræði þar sem boðið verður upp á fjölbreytta fyrirlestra um ljósmyndir, lykt, sjúkdóma, persónur og átök svo nokkuð sé nefnt. Fyrirlestrarnir eru haldnir á Minjasafninu á Akureyri fimmtudagana 5.,12. og 19. febrúar og mars kl. 17:00 og er aðgangur ókeypis. Fylgist með á samfélagsmiðlum eða heimasíðum samstarfsaðila fyrirlestranna.
Fimmtudagsfyrirlestur 19. febrúar: Spegill þjóðar - fréttamyndir í 50 ár og sagan á bak við þær. Gunnar V. Andrésson og Sigmundur Ernir Rúnarsson spjalla um ljósmyndir og starf Gunnars.