Othello- slagurinn á togarabryggjunni á Akureyri árið 1973 - fimmtudagsfyrirlestur með dr. Guðna Th. Jóhannessyni.

Fortíðin verður í forgrunni sem aldrei fyrr sex fimmtudaga í febrúar og mars. Minjasafnið á Akureyri, AkureyrarAkademían og Sagnfræðingafélag Íslands standa að viðburðaröð um sagnfræði þar sem boðið verður upp á fjölbreytta fyrirlestra um ljósmyndir, lykt, sjúkdóma, persónur og átök svo nokkuð sé nefnt. Fyrirlestrarnir eru haldnir á Minjasafninu á Akureyri fimmtudagana 5.,12. og 19. febrúar og mars kl. 17:00 og er aðgangur ókeypis. Fylgist með á samfélagsmiðlum eða heimasíðum samstarfsaðila fyrirlestranna.
 
Dr. Guðni Th. Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands, heldur opnunarfyrirlesturinn 5. febrúar. Hvað gerðist á togarabryggjunni 14. maí 1973 þar sem Othello lá við bryggju? Hvaða lærdóm má draga af því og öðrum þáttum í þorskastríðssögu Íslendinga? Árla morguns hinn 14. maí 1973 lagðist breska eftirlitsskipið Othello að bryggju á Akureyri. Sumarið áður hafði fiskveiðilögsaga Íslands verið færð út í 50 sjómílur en Bretar neituðu að viðurkenna nýju línuna og hafði því komið til átaka á miðunum. Hiti var í Íslendingum og það sýndi sig þennan dag í höfuðstað Norðurlands. Í erindinu verður rás viðburða rakin og komið víða við, ekki aðeins niðri á höfn heldur einnig í Ísbúðinni, Kjötiðnaðarstöðinni, lögreglustöðinni og síðast en ekki síst á sal menntaskólans. Að lokum verður rætt hvaða lærdóm megi draga af „Othello-slagnum“ og öðrum þáttum í þorskastríðssögu okkar Íslendinga.
 
Fyrirlestraröðin er samstarfsverkefni Akureyrarakademíunnar, Sagnfræðingafélags Íslands og Minjasafnsins á Akureyri.
Hótel Akureyri styður við viðburðinn.