AkureyrarAkademían verður með opið hús í tilefni af Akureyrarvöku, laugardaginn 30. ágúst 2025. Öll velkomin í heimsókn til að kynnast starfseminni, skoða aðstöðuna og þiggja léttar veitingar.
AkureyrarAkademían er þverfaglegt samfélag fólks sem vinnur að fjölbreyttum og skapandi verkefnum. Við bjóðum upp á góða aðstöðu og hvetjandi umhverfi.
Við hlökkum til að sjá ykkur!