Fyrirlestur Benedikts Sigurðarsonar um Laxárdeiluna, í salnum á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Vestursíðu 9, Akureyri, föstudag 17. apríl, kl. 13:30

Árin 1968 til 1974 stóð ágreiningur um stórkarlalegar virkjunarhugmyndir í Laxá i Þingeyjarsýslu - með Suðurárveitu/Skjálfandafljótsveitu og tilheyrandi miðlunarlónum og allt að 60m hárri stíflu neðst í Laxárdal. Virkjun Laxár við Brúarfossa og framkvæmdir við útfall árinnar úr Mývatni á sér rúmlega 90 ára sögu og samhengi. Laxárdeilan var kveðin niður eftir að Þingeyingar sprengdu stífluna i Miðkvísl i ágúst 1970 og sett voru sérlög um „verndun Laxár og Mývatns" árið 1974.

Í erindinu verður fjallað um samhengi Laxárvirkjana og átökin sem risu um áformað rask með vatnaflutningum úr Skjálfandafljóti.

Benedikt Sigurðarson er eftirlaunamaður sem býr og starfar á Akureyri og í Þingeyjarsveitum og er félagi í AkureyrarAkademíunni.

Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkir viðburðina.

Öll velkomin – ókeypis aðgangur!