Hvað segja manntöl um geðveikt fólk á 19. öld?

Frá árinu 1845 var skylt að tilgreina í manntölum á Íslandi hverjir töldust geðveikir. Í erindinu er ætlunin að sýna hvernig manntölin varpa ljósi á hvernig hugmyndir lækna um geðveiki og geðsjúkdóma breyttust á tímabilinu. Þar koma kynja- og aldursbreytingar sérstaklega við sögu og verður rakið hvaðan þessar hugmyndir koma. Einnig varpar lýðfræðileg greining á geðveiku fólki skýru ljósi á ýmsar samfélagsbreytingar á tímabilinu. Þar má sérstaklega benda á breytingar á búsetu og heimilisaðstöðu þeirra.

Fyrirlesturinn fer fram í stofu M102 við Háskólann á Akureyri, kl. 12:00, miðvikudaginn 15. janúar.

Allir velkomnir!