Fyrirlestur AkureyrarAkademíunnar og hjúkrunarheimilanna á Akureyri fyrir íbúa heimilanna og aðra bæjarbúa

Fyrirlestur Sigurgeirs Guðjónssonar, sagnfræðings um aðbúnað geðveiks fólks á Akureyri og í nágrannabyggðum á 19. öld. 

Í fyrirlestrinum er lífsháttum og örlögum valinna einstaklinga lýst eftir því sem finna má í heimildum. Fjallað er um viðbrögð bæjaryfirvalda og hreppa við aðstæðum og hvernig heilbrigðisyfirvöld reyndu að stíga sín fyrstu skref í átt að velferðarsamfélagi nútímans. 

Viðburðurinn er hluti af fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar og hjúkrunarheimilanna á Akureyri á þessu ári fyrir íbúa heimilanna og aðra bæjarbúa. 

Menningar- og viðurkenningasjóður KEA styrkir fyrirlestraröðina á þessu ári. 

Öll velkomin - ókeypis aðgangur.