Fortíðin í nýju ljósi. Fimmtudagsfyrirlestur með Kjartani Ísleifssyni, sagnfræðingi.

Fortíðin verður í forgrunni sem aldrei fyrr sex fimmtudaga í febrúar og mars. Minjasafnið á Akureyri, AkureyrarAkademían og Sagnfræðingafélag Íslands standa að viðburðaröð um sagnfræði þar sem boðið verður upp á fjölbreytta fyrirlestra um ljósmyndir, lykt, sjúkdóma, persónur og átök svo nokkuð sé nefnt. Fyrirlestrarnir eru haldnir á Minjasafninu á Akureyri fimmtudagana 5.,12. og 19. febrúar og mars kl. 17:00 og er aðgangur ókeypis. Fylgist með á samfélagsmiðlum eða heimasíðum samstarfsaðila fyrirlestranna.

Fimmtudagsfyrirlestur 19. mars: Skreytingar í handritum síðari alda og þáttur af einum norðlenskum listaskrifara. Kjartan Ísleifsson, sagnfræðingur.

Fyrirlestraröðin er samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar, Sagnfræðingafélags Íslands og Minjasafnsins á Akureyri