Ársfundur AkureyrarAkademíunnar 2021

Á dagskrá eru aðalfundarstörf samkvæmt 12. gr. skipulagsskrár AkAk:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Endurskoðun reikninga.
3. Upptalning fulltrúa.
4. Kjör formanns og fulltrúaráðs.
5. Fjárhagsáætlun og árgjald.
6. Breytingar á skipulagsskrá.
7. Önnur mál.

Á fundinum mun Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur jafnframt kynna verkefni sem hún hefur unnið að fyrir AkAk sem felur í sér yfirlit yfir verk sem háskólafólk og aðrir fræðimenn hafa unnið að á vettvangi AkAk frá stofnun Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi árið 2006 og til þessa.

Ennfremur verða lögð fram drög að starfsstefnu AkAk í samræmi við 4. gr. skipulagsskrár til umræðu og samþykktar.

Árgjald vegna ársfundar 2021 er kr. 1.500. Vakin er athygli á að samkvæmt 5. gr. skipulagsskrár AkAk er atkvæðisréttur á ársfundi bundinn við þá sem greiða árgjald fyrir ársfund en fundurinn er engu að síður öllum opinn.