Andlitsgreining mannamynda með gervigreind

Fyrirlestur Harðar Geirssonar, safnvarðar ljósmyndadeildar Minjasafnsins á Akureyri um andlitsgreiningu mannamynda með gervigreind, föstudag 11. apríl 2025, í salnum á hjúkrunarheimilinu Hlíð, Austurbyggð 17, Akureyri, kl. 13:30. 

Í fyrirlestrinum verður fjallað um verkefni sem fólst í að safna saman ljósmyndum Önnu Schiöth ljósmyndara á Akureyri úr flestum söfnum landsins og að láta síðan gervigreind hjálpa við að nafngreina óþekkta einstaklinga á ljósmyndunum.

Anna Schiöth f. Larsen var ljósmyndari Akureyringa í 20 ár frá 1878 til 1898, og myndaði mjög marga Norðlendinga sem áttu leið um Akureyri þessa áratugi. Myndir hennar hafa varðveist vel sökum þess að hún hafði ljósmyndatæknina á sínu valdi, notaði góð efni og var vandvirk. Síðustu rúm 20 ár ævi sinnar helgaði hún Lystigarðinum á Akureyri.

Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa.

Öll hjartanlega velkomin!