Akureyrarveikin og ME-sjúkdómurinn:Fimmtudagsfyrirlestur með Óskari Þór Halldórssyni og dr. Friðbirni Sigurðssyni

Fortíðin verður í forgrunni sem aldrei fyrr sex fimmtudaga í febrúar og mars. Minjasafnið á Akureyri, AkureyrarAkademían og Sagnfræðingafélag Íslands standa að viðburðaröð um sagnfræði þar sem boðið verður upp á fjölbreytta fyrirlestra um ljósmyndir, lykt, sjúkdóma, persónur og átök svo nokkuð sé nefnt. Fyrirlestrarnir eru haldnir á Minjasafninu á Akureyri fimmtudagana 5.,12. og 19. febrúar og mars kl. 17:00 og er aðgangur ókeypis. Fylgist með á samfélagsmiðlum eða heimasíðum samstarfsaðila fyrirlestranna.

Fimmtudagsfyrirlesturinn 12. febrúar: Akureyrarveikin og ME-sjúkdómurinn. Óskar Þór Halldórsson og dr. Friðbjörn Sigurðsson. 

Akureyrarveikin var skæður sjúkdómur sem herjaði á Akureyringa og fjölmarga aðra um allt land veturinn 1948 til 1949. Veikin stakk sér aftur niður sex árum síðar, veturinn 1955-1956, á Vestfjörðum og í Þistilfirði. Aldrei hefur verið upplýst hvers konar veikindi þetta voru en allt bendir til þess að um hafi verið að ræða veirusýkingu af einhverjum toga.

Það hefur komið í ljós að sláandi líkindi eru með afleiðingum Akureyrarveikinnar og langvarandi eftirköstum COVID 19 og ME-sjúkdómnum. Þetta kemur skýrt fram í bók Óskars Þórs Halldórssonar um Akureyrarveikina sem kom út á síðasta ári og hefur vakið mikla athygli. Til einföldunar má segja að Akureyrarveikin hafi verið ME-sjúkdómur þess tíma.

Friðbjörn Sigurðsson læknir við Akureyrarklíníkina, sem er þjónustumiðstöð fyrir fólk með ME-súkdóminn eða langvarandi einkenni COVID, þekkir vel einkenni ME-sjúkdómsins og hversu útbreiddur hann er í okkar samfélagi á Íslandi og út um allan heim.

Óskar Þór og Friðbjörn munu í fyrirlestri sínum tefla saman fortíð og nútíð og velta upp ýmsu er tengir Akureyrarveikina og ME-sjúkdóminn.

Öll velkomin - enginn aðgangseyrir!