"Að setja sálina í pottana: ferðaþjónusta, staður, matur og margbreytileiki"

Eitt útbreiddasta hnattræna tískufyrirbæri samtímans eru eftirspurnin eftir hinu staðbundna, þar sem matur og matarmenning leikur mikilvægt hlutverk. Segja má að áherslan á hið staðbundna og sérstaka í matarmenningu sé ekki síður fylgifiskur hnattrænna afla en skyndibitamenningin. Hin sívaxandi ferðaþjónusta, sem er eitt skýrasta dæmi hnattvæðingarinnar, ýtir undir staðbundin sérkenni með eftirspurn eftir einstakri og framandi upplifun. Þannig má segja að eitt sé háð öðru í hinni meintu andstæðu, hnattvæðingu og staðbindingu. Á milli ríkja andstæðuvensl sem skilgreina hvort um sig. Hið staðbundna er skilgreint í hnattrænu samhengi og hið hnattræna er skilgreint út frá staðbundnum forsendum.

Erindið fjallar um hugmyndir, viðhorf og hugsjónir tengdar staðbundnum mat í ferðaþjónustu í dreifbýli. Skoðað er hvað liggur að baki áherslum ferðaþjónustufólks á staðbundin matvæli og framreiðslu þeirra. Farið er yfir hvernig viðhorf og gildi taka á sig efnislega mynd í mat sem borinn er fyrir ferðamenn og í hvaða félagslega og menningarlega samhengi þau verða til. Þá er gluggað í hvernig þessi viðhorf og gildi eru túlkuð í orðræðu og daglegu máli - meðal annars um mat og matvælaframleiðslu.

Rannsóknin, sem erindið byggir á, er þjóðfræðileg greining á hugmyndum að baki staðbundnum matvælum. Í anda þjóðfræðinnar er leitast við að lýsa viðhorfum fólks, greina hvaða merking liggur að baki og hvernig sú merking hefur orðið til. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar er þverfaglegur og byggir á kenningum um sköpun staða og staðbindingu, hópa, samfélög og sjálfsmyndir, sem og kenningum um athafnir fólks og tengslanet.

Laufey Haraldsdóttir er lektor og deildarstjóri Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, þar sem hún hefur starfað síðan 2002 við kennslu og rannsóknir. Laufey hefur komið að ýmsum rannsóknar- og þróunarverkefnum tengdum mat og og ferðaþjónustu, auk þess sem hún hefur umsjón með námskeiðum á sviði matarmenningar, heilsuferðaþjónustu og menningararfs. Laufey er menntaður dýralæknir frá Dýralæknaháskóla Noregs, auk þess að vera með meistaragráðu í þjóðfræði frá Háskóla Íslands.