24. febrúar 2026

Fortíðin í nýju ljósi: Ilmur, angan og fnykur: Ýmis lykt í íslenskum heimildum frá 19. og 20. öld

Fimmtudagsfyrirlestur Ragnhildar Bjartar Björnsdóttur, sagnfræðings, þar sem hún þefar fortíðina uppi í fyrirlestraröðinni Fortíðin í nýju ljósi á Minjasafninu á Akureyri fimmtudaginn 5. mars kl. 17:00. Fimmtudagsfyrirlestrarnir eru samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar, Minjasafnsins og Sagnfræðingafélags Íslands.

Sögu tilfinninga hefur lítið verið gefinn gaumur fram til þessa. Í sjálfsbókmenntum og tímaritum frá seinni hluta 19. aldar og byrjun 20. aldar er að finna glás af lýsingum á alls konar lykt. Fólk lýsir anganinni sem stígur upp úr fjallagrasabeði á rökum haustmorgni, ilminum úr eldhúsinu þegar mamma bakaði pönnukökur og fnyknum sem steig upp úr pottinum á þvottadegi. Allar gefa þessar heimildir okkur betri innsýn inn í hversdagslíf Íslendinga fyrr á öldum og með því að einblína á lyktina – að þefa fortíðina uppi – fæst vitneskja um hvaða skoðanir fólk hafði á sjálfu sér, öðrum og umhverfi sínu.

Í fyrirlestrinum verðar nokkrar skemmtilegar lýsingar á lykt dregnar fram og lögð verður sérstök áhersla á lýsingar á lykt sem finna mátti á Akureyri og í nærsveitum. Gerður verður saman burður á lyktinni í sveit og þéttbýli auk þess sem rætt verður um ólík orð sem heimildamenn nota yfir ólíka ilmi og fnyki.

Verkefni Ragnhildar, Íslandssaga skynfæra , var tilnefnt til verðlauna Nýsköpunarsjóðs námsmanna árið 2025. Það var unnið undir leiðsögn Sigurðar Gylfa Magnússonar, prófessors í menningarsögu við Háskóla Íslands.

Öll velkomin - enginn aðgangseyrir!

Næstu fimmtudagsfyrirlestrar á Minjasafninu:

12. mars. Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur (1809-1871) og brotakenndar heimildir. Dr. Erla Hulda Halldórsdóttir, sagnfræðingur. 

19. mars. Skreytingar í handritum síðari alda og þáttur af einum norðlenskum listaskrifara. Kjartan Ísleifsson, sagnfræðingur.