4. mars 2026
AkureyrarAkademían óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra
Leitað er að áreiðanlegum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, skipulagshæfni og getu til að starfa sjálfstætt og að vinna með öðrum.
Um er að ræða 50% starf. Ráðning er frá 1. maí 2026. Senda skal ferilskrá og kynningarbréf á netfangið akak@akak.is Umsóknarfrestur er til og með 18. mars nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með fjármálum AkureyrarAkademíunnar, daglegum rekstri og starfsemi
- Útleiga á vinnuaðstöðu
- Kynningarmál og umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum
- Öflun styrkja og verkefna
- Skipulagning og umsjón með viðburðum
- Umsjón með samningum AkureyrarAkademíunnar við einstaklinga, stofnanir og opinbera aðila
- Samskipti og samstarf við almenning, fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og opinbera aðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á rannsókna- og fræðastörfum
- Reynsla af verkefnastjórnun, fjármálum og rekstri
- Góð tölvufærni og reynsla af því að vinna í rafrænu umhverfi
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
- Færni í Norðurlandamáli/öðrum tungumálum er kostur
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna með öðrum
Um AkureyrarAkademíuna